VEI !!!! Loksins komið….. áhugamálið sem ég er búinn að bíða eftir.
Núna er spennan í hámarki eftir að bálkarnir sameinuðust og allir eru rosalega dularfullir. Þótt að Kucha og Ogakor séu sameinaðir og heiti nú Barramundi eru samt þeir sem voru saman í Tribe á móti hinum. Ég held að Kucha hópurinn sé að hverfa eftir að Ogakor náði að yfirstíga þá og eru nú fleiri. Ogakor tekur þá núna bara einn eftir einan……. nema einhver af Kucha Tribe verði svo heppin að ná friðhelgi fyrir næstu kosningar.
Seinast var Alicia kosin í burtu eftir spennandi kosningar. Ég held að þegar Kucha er horfinn þá verður Jerri fyrst til að fara hjá Ogakor. Ég þoli hana ekki. Hún er svo pirrandi og leiðinleg við alla, og svo er Amber alltaf í rassgatinu á henni, eltir hana úti um allt og er ALLTAF sammála henni.
Tina er eitthvað geðbiluð held ég……… ég man þegar Mad Dog var ennþá þá var Tina og hún ofboðslegir vinir…… en svo votaði Tina hana útaf, og brosti þegar hún valdi Mad Dog á kosningunum. What a …… !!!!
Allavana…….. hvað finnst ykkur um allt þetta ?