Þátturinn í gær (26.apríl '03)

Þetta var ágætur þáttur Það var keppni um ættbálkinn, því þau voru spurð spurninga t.d. Hver á ekki skilið að vera í All-stars? Svar:Alica og þannig en ef þau fengu rétt máttur þau höggva reipi hjáeinhverjum sem voru 3 og þegar þriðja bandið fór maskaðist gríma sem var andlitið á þeim og þau voru úr leik, verðlaunin voru matur (og drykkur) og Rupert þurfti að skammta öllum og þá kom í ljós goggunarröðin… Rupert var voða leiður yfir að þurfa gera þetta en hresstist við það að drekka 8-9 bjóra og verða fullur.

Shii Ann var alveg 99,9 % viss að hún færi ef hún ynni ekki friðhelgi.. sem var alveg rétt en hún vann friðhelgi en keppnin fólst í því hver hafði mesta andlega styrkinn því að þau áttu að hafa hendina upp í loft og ekki hreyfa hana því þá datt vatnsfata niður. Shii Ann gætti samt ekki að sér og byrjaði að öskra og benda á þau í sigurgleði sinni og fattaði örugglega ekki það sem Alicia sagði henni að hæun þyrfti að búa með þessu fólki ennþá.

Svo fóru allir á þing um kvöldið og var ekki víst hver myndi fara en að lokum var Alicia send heim og hún sór þess að gera Boston Rob það ekki auðvelt að vinna milljónina….

en ekki meira að sinni veriði blessuð