Mitt álit Jæja… Þetta verður ekkert bara um einn þátt (samt mest) heldur allt í heildina ! Ég hef misst soldið mikið úr Survivor en hef samt brennandi áhuga á leiknum !

Ég hélt með Kathy en hún var kosin út í gær,hún var einn besti spilarinn þarna. Í gær þegar hún var kosin út vildi ég sjá Jennu eða Shii Ann fara eða nánast alla nema hana.

Í þættinum í gær gerðist það ólíklegasta mér byrjaði að líka við Shii Ann og Jennu, en reyndar fauk það strax þegar þær fóru að grenja Shii Ann alveg ég er næst og auðvitað verður hún það ef hún lætur svona !! og Jenna voða leið yfir að Kathy skyldi fara, en samt kaus hún hana !!
Eitt sem mér finnst mjög augljóst í þessum leik hvað þeim er hjálpað mikið af stjórnendum eins og þegar enginn gat kveikt eld nei viti menn akkúrat eldspýtur í verðlaun og af því það rigndi svo mikið nei regnstakkar í verðlaun. en aftur að síðasta þætti voðalega hefði ég verið til í að sjá myndbandið hans Boston Robs en fannst þetta samt mjög sniðugt en skil ekki alveg talið um að þetta styrki þau, þau verða bara enn leiðari og þunglyndari öll grenjandi og sakna auðvitað fjölskyldna sinna ! en hvað veit ég hef ekki verið þarna.
Þessi grein verður ekki mikið lengri en þetta er fyrsta greinin sem ég skrifa hér og er þetta bara mitt álit !