Þátturinn 22.mars Þátturinn byrjaði á að sýna eins og vanalega að allt var alveg fullkomnlegt hjá Chapera, hve allir væru glaðir þar og skemmtu sér en hjá Mogo mogo hve hópurinn þar voru ekkert glaðir og allt á öðrum endanum hjá þeim.

Verðlaunakeppnin var þannig að það átti að velja einn einstakling sem átti að fara fyrir hönd ættbálksins og átti hann að heimsækja hinn ættbálkinn og vissu menn ekkert hvað væri um að vera, hvort þessi einstaklingur þyrfti að dveljast þar eða ei. Jenna fór fyrir Chapera og Kathy fór fyrir hönd Mogo mogo.
Er þær komu loks á þeirra áfangastað þá fengu þær loks að brjóta flöskuna sem þær voru með og lesa bréfið sem var í því.
Í því stóð að þær áttu að velja einhverja þrjá hluti sem þær vildu og ef ættbálkurinn myndi vinna í verðlaunakeppninni þá fengu þau þessa þrjá hluti.

Chapera báðu um: einn hrísgrjónapoka, stöngina sem mogo mogo höfðu notað til að veiða og grillið.
Mogo mogo: báðu um: teppi, fallhlífina og ég man ekki í fljótu bragði hver þriðji hlutinn var.

Verðlaunakeppnin var þannig að það hringlaga trjábútur sem var staðsettur fyrir ofan vatn og var dregið hvort það væri karl á móti karli eða kona á móti konu og áttu þau að reyna að halda jafnvæginu á þessu og verð ég að segja að boston rob var snillingurinn í þessari keppni og valtraði hann léttilega yfir ethan og lex sem mættu honum. Big Tom sat hjá þessa keppni.
Endaði þetta með að Chapera vann 4 - 2.

Jenna kom til Mogo mogo seinna um kvöldið og voru allir leiðir við að þurfa að missa spjótið þar sem það gerði alveg ótrúlegt gagn og hrísgrjónin þar sem þau áttu lítið eftir.

Þá var komið að friðhelgis keppninni og var hún þarnig að að það var svona svipað píluspjald og fyrsti hluturinn sem var notaður var svona blástursrör og hlægilega séð þá var Jerri sú eina sem náði að hitta á spjaldið.
Næst var komið að því að henda spjóti og sigraði Chapera þá umferð eftir gott skot frá Rupert.
Þriðja þrautin var sú og sú sem réð úrslitum hvernig ættu að fara á þing var að ættbálkurinn þurftu að velja einn sem myndi nota boga og var Jerri valinn fyrir hönd Mogo mogo og Boston Rob fyrir Chapera.

Að mínu mati hef ég ekki hlegið svona lengi yfir þraut þar sem Jerri kom alveg með sjálfstraustið í því hæsta þar sem hún sagðist vera búin að vera að æfa þetta eitthvað minnir mig og hitti hún ENGU á spjaldið, af öllum þremur örvunum sem hún hafði þá hitti hún ekkert og náði þar með Rob að tryggja sigurinn þar sem að hann hitti á spjaldið en alveg ótrúlega utarlega og var hann heppinn að þetta hitti á. Jerri auðvitað svo leið og fannst mér þetta bara gott á hana þar sem hún gerir ekki neitt, ekki reyndi hún að bæta þetta með að fara að gera eitthvað gagn heldur lagðist hún aftur niður og gerði ekki neitt og vorkennt sjálfum sér.

Lex gerði það sem hann er vanur og sleikti konunurnar upp og lofaði þeim öllu góðu að þau yrðu í hóp þeirra efsta og endaði þetta með að Ethan var rekinn út með 3 vote á sig og Jerri fékk 1. Hann tók því vel og má hann vera ánægður að vera sá síðasti eftir sem hefur sigrað áður í survivor.

Svo er auðvitað næsti þátturinn sem ég er spenntur yfir og sást að kannski verði enginn samruni ? allavega ekki strax. Að þau voru að draga upp úr kassa einhver bönd og kom eitthvað að Amber fannst hún vera svikin í þessu, að kannski er verið að draga í nýja ættbálka ?
//Skari