Ég ætla að skrifa smá um þá sem eru eftir,ég fékk heimildir á CBS Survivor síðuni.

Jon fór í háskóla í Virginiu,eftir að hann útskrifaðist flutti hann til Washington og Portland en núna býr hann í LA,hann hefur unnið sem umboðsmaður og kynningarstjóri fyrir atvinnumann í glímu???Hvað sem það nú er.Hann hefur líka unnið við síma og útvarpssölu.
Hann vinnur núna sem listaráðgjafi fyrir Tamara Bane listasafnið.
Hann hefur nú ekki mjög merkileg áhugamál en þau eru stelpur,sjónvarpsgláp og tónlist.
Hann telur sig vera mjög snjallan og þessvegna sótti hann um að fá að fara í Survivor.

Sandra Diaz-Twine á heima í úthverfi Washington,hún á 2 börn Tataniu sem er 8 ára og Alannu sem er 6,maðurinn hennar heitur Marcus.Hún hefur í gegnum tíðina unnið margvísleg störf fyrir Bandaríska herinn.Hún hefur unnið á rannsóknarstofu hersinns við að höndla hættuleg efni,líka við sölu í einni af fatabúðum hersinns og hjá póstþjónustu hjá hernum en núna vinnur hún sem aðstoðar skrifstofustjóri fyrir flugherinn.
Áhugamál hennar eru útileigur með fjölskylduni og veiðiferðir.
Hún er með gráðu í viðskiptafræði sem hún er mjög stollt af.
Hún dýrkar mömmu sína og er Sandra í Survivor vegna hennar því að hún kenndi henni að lifa af í óbyggðum.
Uppáhalds íþrótt hennar er blak

Lillian býr í Loveland, Ohio,hún á mann sem heitir Lonnie og hafa þau verið gift í 30 ár og eiga þau 2 uppkominn börn.
Hún er ný ráðinn í vinnu hjá gleraugnafyrirtæki.
Hún er líka með bókhaldsgráðu.Áhugamál hennar eru útileigur,að sigla á kanóum og ævintýramennska.Hún hefur verið skátaforingi í 11 ár en fyrst aldurinn er farinn að færast yfir hefur hún ákveðið að hætta því.Hún er stollt af því að unnið kynningarstarf fyrir gleraugnafyrirtækið með því að gefa 20000 gleraugu til fátækra í Tælandi.Uppáhalds íþróttin hennar er hafnarbolti

Darrah Johnson vinnur við að útsetja og skipuleggja jarðarfarir í Mississippi.Hún hefur unnið sem einkaþjálfari,þjónn og í sölumennsku.Hún er með gráðu í listum og einhverja menntunn í að skipuleggja jarðarfarir og hefur hún hlotið verðlaun fyrir það.
Hún er með bíladellu og áhugamálin hennar eru bílar,heilsa og hreyfing og að veiða.Uppáhalds íþróttirnar hennar eru hafnarbolti og bandí.Hún telur sig eiga heima í Survivor aðallega vegna þess að hún er í góðu formi og hún er með sterka geðheilsu.
Hún hefur einnig unnið fegurðarsamkeppni.


Ég svona veit ekki hverjum ég á að halda með eftir að Rubert og Savage fóru,John er snillingur sem hefur alla í rassvasanum,eða hafði þá í rassvasanum.
Darrah er sterk og á alveg skilið að vinna og Sarah hefur spilað leikinn mjög vel.
Ég þoli ekki Lill,ég er viss um að hún er mjög góð manneskja en hún er bara ekki rétt í þennan leik.Hef bara aldrei þolað hana.

Endilega segið mér ef að það eru staðreyndarvillur en sleppið öllu rugli um stafsetningu
Ekkert er leiðinlegra en leiðinleg undirskrift!