Brottrekstur Burtons í gær sýndi okkur að allt getur gerst. En ég stend enþá við þá spá að Darrah og Lill hafni í loka 2 hópnum og Darrah muni vinna 5-2. Ég byggi þetta á hvernig hver karekter er klipptur til í hverjum þátti og eftir að Darrah hefur sýnt mikinn styrk og karekter með því að vinna þrjár friðhelgiskeppnir í röð þá er hún í stórum plús hjá mörgum.
Þetta er enginn Spoiler því að það eru enþá 8 tímar í lokaþátinn í U.s.a. þegar þetta er skrifað.

Þeir sem kjósa Dörruh eru: Ryan o, Rupert, Tijuana, Burton, Jonny Fairplay. ÞAu sem kjósa Lill eru Christa og Sandra.

Samkvæmt tölfræðinni þá eru “bara” 6 hugsanlegir “final 2” hópar í boði og að neðan er mín spá um hvern einasta hóp.

Darrah vs. Lill 5-2 eða 7-0.
Pottþétt að Jonny, Burton´, Ryan o. og Tijuana kjósi Dörruh. Sennilega Rupert líka þar sem Lill sveik Rupert þegar Hann var kosinn út. Trúi frekar að Sandra og Christa kjósi Lill en gætu coperað Rupert og kosið Dörruh og þar með myndi þessi bardagi fara 7-0. Síðan gæti hugsanlega kviðdómnum fundist að Lill ætti ekki skilið að vinna því hún var kosinn aftur inn í leikinn.

Darrah vs. Jon 6-1 eða 5-2.
Þriggja manna bandalag Ruperts, Christu og Söndru munu aldrei kjósa Jon og Ólíklegt að Tijuana og Ryan O myndu kjósa Jon. Sá eini sem myndi örugglega kjósa Jon er Burton. Það er tvísýnt með atkvæði Lill, Svona 50/50 hvorn hún myndi kjósa en hallast þó að Dörruh.

Darrah vs. Sandra 5-2 eða 4-3.
Rupert og Christa myndu pottþétt kjósa Söndru. Jonny, Burton, Ryan O, og Tijuana myndu langlíklegast kjósa Dörruh. Erfitt að segja með Lill en hallast þó mun frekar að Dörruh.

Lill vs. Jon 4-3 eða 2-5.
Ekki séns að Burton og Ryan O muni kjósa Lill. Tijuana mun sennilega kjósa Lill ásamt Rupert, Christu og Söndru en svona 50/50 með Dörruh. En ég hef einhverja tilfiningu að þetta gæti farið 0-7 Jon í vil því Lill sveik Rupert eftirminnilega um daginn og það gæti komið henni um koll, síðan gætu kviðdómendur fundist að Lill ætti ekki skilið að vinna því hún var kosinn aftur inn í leikinn.

Lill vs Sandra 3-4 eða 0-7.
Christa og Rupert munu pottþétt kjósa Söndru og líklegast að Burton og Ryan O geri það sama enda er Burton fúll eftir seinasta Tribal concil og Ryan O hefur óbeit af Lill eftir þingið sem hann var rekinn út. . Darrah, Tijuana og Jon eru erfið. Kannnski finnt þeim að Lill eigi ekki skilið að vinna því hún var kosin aftur inn í leikinn og þá myndu þær og JÁ líka Jon pottþétt kjósa söndru og þessi bardagi myndi fara 0-7.

Sandra vs Jon 4-3 eða 5-2.
Þau sem myndu Pottþétt kjósa Söndru eru Christa og Rupert en sá sem mun pottþétt kjósa Jon er Burton. Erfitt að segja með hin 4 atkvæðin er ég held að Tijuana myndi kjósa söndru ásamt Dörruh en Lill og Ryan O myndu kjósa Jon. Annars finnst mér þetta vera mjög tvísýnt .ar sem Sandra var svo mikil tík við suma. Þá er góður séns að þessi bardagi myndi fara 2-5.

Samkvæmt þessuum spám ætti Darrah að geta sigrað alla lokahópa, Lill engan og Sandra og Jon ættu möguleika gegn hvort öðrum fyrir utan að þau tvö myndu sennilega rústa Lill.
Við sjáum til á Mánudaginn hvort þessi spá muni rætast en ég segi go Darrah jafnvel þó ég hata þennan hreim þinn.