Ég man ekki alveg hvað gerðist í þarsíðasta þætti en ég man allavega eitthvað;)
í verðlaunakeppninni áttu þau að ganga í einhverri leðju (er ekki alveg viss hvað þetta var) og ná í fána. Þau voru 3 og 3 saman í liði og þau sem voru í liðinu sem vann áttu að keppa síðan í úrslitakeppninni. Það voru Dave, Alex og Deena sem kepptu og Dave vann. Hann bauð síðan Deenu með sér og fóru þau á einhvern stað og fengu mat og fóru í bað.
Í friðhelgiskeppninni var það útsláttarkeppni þar sem Jeff las upp spurningar og þeir sem svöruðu rétt gátu höggvið hina keppendurna úr keppni. Hver gat fengið 3 högg til þess að verða úr. Fyrstur varð Matt og annar Dave - kom ekki á óvart. Það var Jenna sem vann friðhelgi og var örugg á þinginu.
Á þinginu var síðan Dave rekinn:( Ég hélt með honum og fannst þetta þess vegna ekkert æðisleg úrslit:/

Síðan er það síðasti þáttur. Þá var verðlaunakeppnin að skjóta með boga og ör og einhverju fleiru. Það voru síðan Matt og Alex sem komust í úrslitin og Alex vann. Hann tók Jennu með sér því hann var búinn að lofa henni því sagði hann og fengu þau að fara á ‘'kaffihús’'.
Friðhelgiskeppnin: Þar áttu þau að borða ýmisleg ógeðsleg skordýr, þetta er orðin sígild keppni í Survivor;) Matt vann og mér fannst óhugnalegt hvernig hann gleypti þetta bara, stórfurðulegur:/ Það var síðan Deena sem var rekin, ég held hún hafi ekki búist við því enda var hún viss um að allir ætluðu að kjósa Alex. Myndbrotið sem kom með henni eftir þáttinn var ekki líkt henni, mér fannst þetta næstum allt önnur manneskja:)
Á þinginu sagði Matt að honum finndist hann ekki í neinni sérstakri hættu. Það sem hann vissi ekki var að þau hefðu líklega rekið hann ef hann hefði ekki unnið. Rob er búinn að ljúga svo mikið í hann og Matt trúir hverju einasta orði:)

Ég veit ekki hver fer næst en ef ég væri Matt myndi ég reyna að vinna friðhelgi til að eiga einhverja von en hann kannski fattar það ekki út af lygunum í Rob;)

>Sweet
Játs!