Jæja þá er komið að því. Ted “Teddy Bear” kosin burt þannig að aðeins 4 eru eftir fyrir lokaþáttin. Þeir sem komnir eru í kviðdómin eru Ted, gamli Jack, löggan Ken og stelpurnar Penny og Erin. Einn úr Chui Ghan og Fjórir úr Sook Jai. Þeir sem eftir eru eru gamla konan JAN, suðurríkjaveitingahúseigandinn CLAY, BRIAN sölumaður notaðra bíla og herþjálfarinn HELEN. Hver haldið þið að muni vinna?

Persónulega tel ég að slagurinn standi milli Helen og Brian.

CLAY
Eins og myndavélarnar sýna, þá er Clay trúlega óvinsælastur hjá hinum í kviðdómnum. Ef hinir hugsa aftur á bak. Þ.e.a.s frá final2 í final3 þá vilja þau trúlega enda gegn honum.

Ég held að planið hjá Brian sé að enda gegn Clay í final2 því að Clay er ekki líklegur til að fá atkvæði hjá Sook Jai fólkinu t.d. Erin og Jack.

Jan veit að Brian og Helen eru líkamlega mun sterkari en hún og því kýs hún hann varla út til að lenda gegn Brian/Helen í final3.

Ég hélt að Helen mundi kjósa hann út seinast en hún valdi besta vin sinn Ted. Þannig að hún er ekki að kjósa eftir persónulegum skoðunum heldur faglegu mati. Þannig að ég held að jafnvel Helen vilji fá Clay gegn sér í final2.

JAN
Af þeim öllum sem eftir eru þá eru mesta líkur á því að núverandi kviðdómur (Ted og Sook Jai (nema Penny)) kjósi gömlu konuna Jan til að eignast milljónina heldur en hina 3. Brian/Helen/Clay hafa nógan tíma til að fatta þetta. Jan hefur ekki unnið sjálf neina kepni og því efa ég að hún nái að vinna Immunity Challenge tvisvar. Þess vegna held ég að Jan verði kosin burt fyrst af þeim öllum.

HELEN og BRIAN
Ég tel að það fari eftir Immunity Challenge keppnunum hver vinnur. Ef Helen vinnur immunity losar hún sig við Brian í final3 og ef Brian vinnur immunity losar hann sig við Helen í final3.

Jæja þetta held ég annars en það endar trúlega þveröfugt eins og venjulega þegar maður er fullviss um eitthvað í þessu.