Þátturinn 9. desember SPOILER Ekki lesa ef þú horfðir ekki á þáttinn þann 9. des.

———————————————– —————–


Alveg er Clay að gera út af við mig af leiðindum, þetta er örugglega leiðinlegasti karlpúngur í heimi!! Alveg er líka þessi ættbálkur met að halda honum, þrátt fyrir að vera búin að tala um það endalaust lengi að reka hann. EFtir síðasta þing þá byrjaði hann á því að skamma Jake hægri vinstri fyrir að segja að sumir ynnu minna en aðrir, snerti þarna einhverjar fínar taugar… En jæja, svo var verðlaunakeppni og nánustu ættingjar keppendanna komu til að taka þátt, í skordýraáti! Þar náðu lengst Jenny konan hans Jake og maðurinn hennar Helen (man ekki alveg hvað hann hét). Síðan vann maðurinn hennar Helen, með því að vera á undan að borða sporðdreka, jakk! Hann fékk að vera í sólarhring með Helen, allt voðalega gaman hjá þeim…. :)
Svo var komið að friðhelgiskeppninni en þá komu eiginkonurnar og hitt liðið til að hjálpa til. Keppnin var hörð en Ted sigraði með hjálp bróður síns.

Annars var þetta fínn þáttur, reyndar ógeðslegt þegar familíurnar voru að éta skordýrin *gubb*. En Ted vann immunity, þurfti samt varla á því að halda af því að Jake var pottþéttur út. Jake átti skilið að vera lengur, hann gerir þó eitthvað þarna, öfugt við Clay. Arg! Vona bara að hann verði kosinn burtu næst, það verður annaðhvort hann eða Jan gamla gellan.

Kveðja simaskra.
Kveðja simaskra