Annar þáttur eftir sameininguna. Þetta byrjaði á því að Ted varð rosa fúll yfir að hafa fengið 3 atkvæði og eitthvað svoleiðis. Ekki batnaði skapið hjá honum í verðlaunakeppninni. Þetta var hindrunarhlaup í 4 hlutum. Þegar Jeff var búinn að kalla Survivor ready? Go! Þá áttu allir af finna sér félaga en þar sem að þau voru 7 varð einn útundann. Og það var hann Jake. Ted og Penny voru saman, Brian og Clay og Jan og Helen. Þau voru með planka og áttu að fara yfir tunnur á þeim. Ef þau duttu þurftu þau að byrja upp á nýtt. Fyrstu tvö pörin héldu áfram.Brian & Clay & Ted & Penny. Þá breyttist þetta í einstaklingskeppni. Þau áttu að skríða undir net á maganum. Fyrstu þrír komust áfram. Það voru Clay, Brian og Ted. 3 hlutinn var þannig að þeir áttu að komast yfir vegg se var mjög hár þannig að þeir þurftu hjálp frá hvorum öðrum. Ted og Brian hjálpuðu Clay yfir og Clay hjálpaði Brian. Þá var Ted úr. Síðasti hlutinn var þannig að þeir þurftu að labba yfir bambus spýtur án þess að detta. Ef þeir duttu þurftu þeir að byrja upp á nýtt. Brian vann. Verðlaunin voru ferð um Thailand á fílsbaki og hádegisverður. Brian mátti bjóða einum með. HHann bauð Clay. Þá varð Ted rosa fúll því að Brian og Ted hafa verið bestu vinir eiginlega síðan Survivor 5 hófst. Í ferðinni var Brian dauðhræddur um að detta af baki og hélt sér í allann tímann. Þeir fengu rækjusúpu og bjór í hádegismat og tóku afganginn með til að gefa hinum.
Friðhelgiskeppnin var þannig að þau höfðu öll þrjá kyndla. Þetta var spurningaleikur. Ef þau svöruðu rétt máttu þau slökkva á einum kyndli hjá einhverjum öðrum. Jan, Helen og Ted voru þrjú síðustu. Helen svaraði tvisvar á röð rétt og vann frið helgi. Á þinginu var Penny kosinn burt :( en Jan og Jake fengu líka atkvæði?