Þannig er nú það að ég á Cubase 4 sem ég hef sirka tvisvar sinnum kíkt á. Ég lánaði síðan bróður mínum það þar sem hann þurfti að nota það í skóla í belgíu, fékk það svo aftur og hef enn ekki notað það. Ég veit að cubase 5 er komið út, en það er mun ódýrara að kaupa uppfærslu en allann pakkann. Ef mér skjátlast ekki, þá er hægt að færa leyfið yfir á annann aðila. Ég var að hafa samband við tónabúðina til að athuga hvort það sé ekki möguleiki. Það er alla vega kjánalegt að láta þetta grafast undir ryki hjá mér þegar einhver annar gæti notað þetta…

Ef einhver hefur áhuga:

7oi@7oi.org

Það er ekkert endilega gott að senda mér skilaboð hér, þar sem ég kíki voða sjaldan á huga…

jói