Spurningin er eiginlega í titlinum. Mig langar mikið að fara að gera Gothic/Dark Wave/Rock/Ethereal/Industrial tónlist og var að spá hvort einhver hér væri að gera svoleiðis og vantaði gítarleikara.

Ég er að verða 17 ára og er með gítar og allar græjur í sambandi við það(magnara, effecta og fleira) og á líka nýja MacBook Pro sem hægt er að nota til sköpunarinnar (get einnig reddað hljómborði og hugsanlega einhverjum pro forritum). Í rauninni er ég að leita að einhverjum sem er góður í þessu því ég hef ekki mikla reynslu en ég er með hugmyndir. Var að spá í eitthvað svipað og Love is Colder than Death, Sisters of Mercy, The Cruxshadows, Skinny Puppy og jafnvel Ministry, þannig að þetta ætti að vera fjölbreytt. Þeir sem hafa áhuga geta svarað hér eða með hugapósti og með e-mail á screamingcrow@gmail.com.

Svo megið þið endilega mæla með einhverjum góðum böndum í þessum dúr hérna í þessum þræði.

kv. The Blitz


Bætt við 24. febrúar 2008 - 17:07
http://www.myspace.com/roacis þetta er ég að spila á gítar.
The waves come crashing as I sail across the waters,
And I hope against hope that the cold steel hull will carry me to salvation.