Sæl veriði öll sömul. Á þetta heima hér? Það ætla ég rétt að vona.

Heyrðu ég er að reyna að adda drum patch í Redrum hjá mér, þegar ég adda patchi vel t.d. “Housekit06” og ætla að spila hann þá heyri ég ekkert “Housekittinu” það er eins og hann virki ekki. Þarf ég eitthvað að fikta í honum að aftan og sjá hvort að hann sé tengdur í rás1 og rás2 og svona (eða eitthvað?)

Ég er algjörlega nýbyrjaður að nota þetta forrit, kann nákvæmlega ekkert.

Þetta á ekki að vera mikill vandi, vitiði hvað getur verið að hjá mér? Ég er að nota Reason 3.0

Vonandi hjálpar mér einhver, langar svo að læra á þetta forrit nefnilega. :D

Fyrirfram þakkir. Kveðja, Höddi.