Það var verið að minnast á að fólk vildi fá að heyra demo og hér er eitt slíkt.

Chico Rockstar - Kriplosk

http://www.simnet.is/chico/chico-kriplosk.m p3

njótið

p.s. ég nenni ekki að bulla einhverja vitleysu um þetta en best að láta þetta fylgja með til að hafa greinina með almennilegri lengt á texta

tekið af vísindavef háskólans:

http://visindavefur.hi.is/svar.asp?id=223 4

Hvað er lengsta lag í heimi langt? (Þá meina ég í nútímatónlist, ekki sinfóníur).

Efalaust mætti telja verk bandaríska tónskáldins John Cage Organ2/ASLSP (skammstöfunin á að standa fyrir as slow as possible, eða eins hægt og mögulegt er) vera lengsta tónverkið. Flutningur verksins hófst 5. september 2001 í bænum Halberstadt í Þýskalandi og verkinu á að ljúka 639 árum síðar.

Þegar flutningur ASLSP hófst mættu rúmlega þrjú hundruð áheyrendur til að fylgjast með organistanum blása lofti í belgi orgelsins. Snemma í janúar árið 2003 verða fyrstu þrjár nóturnar leiknar og 5. júlí 2004 er hægt að hlýða á tvær nótur. Á þennan hátt verður allt verkið flutt hægt og sígandi fram til ársins 2640. Áhugsömum skal bent á að árið 2319 verður, eins og tíðkast á tónleikum, gert stutt hlé á flutningi verksins.

Verkið ASLSP var fyrst samið fyrir píanó árið 1992 og átti þá að taka 20 mínútur í flutningi en John Cage Organ Foundation ákvað árið 2001 að leika verkið á 639 árum til að minnast þess að þá voru jafnmörg ár liðin frá smíði fyrsta orgelsins í Þýskalandi. Hugsanlega hafa kunn orð tónskáldsins um leiðindi og skemmtun verið höfð í huga þegar lengd verksins var ákveðin:
Ef eitthvað er leiðinlegt eftir tvær mínutur, reynið það þá í fjórar. Ef það er enn til ama, reynið þá í átta. Svo sextán og síðan þrjátíu og tvær. Að lokum verða leiðindin að hinni mestu skemmtun.
John Cage er einnig þekktur fyrir annað verk sem hann samdi árið 1952. Það nefnist 4'33'' og er einfaldlega þögn í fjórar mínútur og 33 sekúndur. Það var frumflutt í Woodstock í New York 29. ágúst 1952 af píanistanum David Tudor. Cage taldi 4'33'' vera sitt merkasta verk og hann sagðist hlusta á það á hverjum degi.

John Cage fæddist árið 1912 og lést 1992. Fyrir utan að vera eitt af kunnustu framúrstefnutónskáldum 20. aldarinnar var hann einnig ástríðufullur sveppasafnari.

Á síðunni John Cage í Halberstadt er hægt að fylgjast nákvæmlega með hversu margar sekúndur eru eftir af flutningi Organ2/ASLSP

http://www.john-cage.halberstadt.de/