Raftónlistarmaðurinn Skurken er ágætis vinur minn og allt það en ég ætla hérmeð að bjóða sokkinn hans upp hérna á huga.is. Sokkurinn varð eftir í svefnpokanum mínum þegar ég leifði honum að gista heima hjá mér eftir sudda fyllirí er hann komst ekki að sjálfsdáðum uppí Breiðholt…Nei við erum ekki hommar…Sokkurinn er hreinn og í fullkomnu ástandi. Þetta er einhverskonar þykkur sportsokkur grár að lit með áletruninni “Lorpen”. Sokkurinn hefur nú legið hérna í um.þ.b. fjóra mánuði og Skurken er ekkert á leiðinni að ná í hann. Svo hérmeð hef ég þetta uppboð á sokknum.
Lægsta boð eru tveir bjórar (500 ml.)

Uppboðinu líkur kl. tólf á miðnætti 1. september 2002.
Ekki missa af þessu einstaka tækifæri til að eignast persónulegan mynjagrip frá þessum ástsæla tónlistarmanni…!