Í gærkvöld lauk dómnefnd yfirferð sinni yfir lögin. 16 lög komust í úrslit þar sem þónokkur stóðu jöfn á stigum. Planið var s.s. að hafa þau 15. Lögin eru öll komin inn á <a href=“/raftonlist”>hugi.is/raftonlist</a>.
Til að sjá öll lögin þarf að fara í “sjá meira”. Lögunum er raðað eftir einkunn.

Föstudaginn 21.júní verða svo úrslitin á Gauk á Stöng kl.20:30 og vonumst við til að sem flestir mæti enda eru lögin í ár bara algjör snilld :). Við dómnefndina bætast tveir aðilar á úrslitakvöldinu. Þetta eru Oddur frá NúllEinn.is og Bibbi (Curver). Þetta var ákveðið til þess að fá meiri vídd í dómnefndina. Dómnefndina skipa þá: Ísar Logi (Undirtónar), Unnar (hugi.is), Addi (breakbeat.is), Oddur (nulleinn.is) og Bibbi (Curver).

Hlustið endilega á þau 16 lög sem valin voru og takið þátt í könnuninni.