Djöfull er Björk viðbjóðslega klár í að finna fólk sem er að búa til góða tónlist!..

það skiptir engu máli hvað maður er að byrja að fýla, maður finnur ALLTAF tengingu við Björk, í öllu!

ég downloadaði óvart einhverju lagi með Opiate og fannst það alveg viðbjóðslega flott, fór að spá í hvort þetta væri einhver af þeim sem maður er að hlusta á dagsdaglega undir alias.. en nei, það sem ég finn út er að þetta er maðurinn sem hjálpaði Björk með Undo og Cocoon, lögin sem mér finnast best á Vespertine :(

http://tinyspark.sugarcube.net/news/022.htm

Þetta er freaking ótrúlegt, Aphex Twin, Cylob, u-zig, Sqareusher mafían er bara offspring af Björk.. ég held að hún sé alveg gjörsamlega stóra nafnið í raftónlistarsögunni þegar við munum horfa til baka eftir svona 10 ár..

ef maður er að búa til tónlist, og síminn hringir og “hæ, þetta er Björk.. ertu til í að búa til tónlist með mér og koma svo kanski að kúra?” heyrist í símanum.. þá er maður alveg á réttri leið sko.., þangað til þá er maður bara peð :P