Skýjum Ofar Kombakk! (copy/paste) SKÝJUM OFAR AFTUR Í LOFTIÐ…. , 8/15/2001
Já fyrir ykkur sem eruð ekki en búin að kveikja á perunni, þá mun hinn ástsæli útvarpsþáttur, Skýjum ofar, búin að fá nýtt heimili á öldum ljósvakans. Um er að ræða nýja stöð sem allir áhugamenn um útvarp ættu að vera búnir að athuga, Múzík 885 [www.muzik.is].

Addi og Eldar munu sprella þar á miðvikudagskvöldum og spila þá drum & bass, experimental breakz og fleira eyrnavætandi. Fyrsti þátturinn verður í kvöld, miðvikudagskvöld, á tímunum 22:00-00:00. Þið getið hlustað á hann á fm 88.5 og einnig á vefnum á muzik.is.

með kveðju, allsherjarnefnd Skýjum ofar.