Raftónlistarkeppnin á hugi.is Nú fer að styttast í lokaskiladag raftónlistarkeppninnar (14.maí) en vegleg verðlaun eru í boði Hljóðfærahúss Reykjavíkur.

Að taka þátt er einfalt!

Þú sendir einfaldlega lagið inn á mp3 formi eftir að hafa lesið reglurnar hér á eftir.
Hver listamaður getur sent inn eins mörg lög og hann vill enda er verið að keppa um besta lagið.

Þú hefur möguleika á að vinna fullkomið PRO TOOLS heimastúdió frá Hljóðfærahúsi Reykjavíkur að verðmæti 95.500.-.

Pro Tools hefur í þó nokkurn tíma verið staðall í hljóðverum erlendis og hér á landi.
Frekari upplýsingar eru á www.digidesign.com.

Skilafrestur er til 14.maí 2001

Smellir á borðann hér til hægri til að taka þátt.