Mér hefur gengið afskaplega illa að ná sambandi við umsjónarmenn HUGA. Hef reynt það nokkrum sinnum án árangurs. Málið er að ég setti inn tengla á síður og í a.m.k. einu tilfelli rataði tengillinn ekki á réttan stað, þ.e. ég tók ekki eftir því þegar ég var að senda inn tengilinn að ég þurfti að velja flokk. Síðan þá hef ég a.m.k. 2svar reynt að fá þessu breytt. Það sem mér þykir verst er að ég hef ekkert svar fengið!
Hver er reynsla annarra?
Er vonlaust að ná sambandi við umsjónarmenn HUGA?