RAF for 5 operatingS

Hvað : Raftónlistartónleikar
Hvenar:Næstkomandi föstudag,13.12.02
Klukkan:21.00-03.00
Dagskrá:

Ein óma( vertical form )
Adrone
Shaha Mostar ( thulemusik)
Biogen
Exos ( force inc )


lýsing :

Næstkomandi föstudag verða haldnir athyglisverðir
tónleikar á skemmtistaðnum Vídalín við Aðalstræti. Þar
verður leikin hágæðaraftónlist af nokkrum góðkunnum
raftónlistarmönnum langt fram eftir nóttu.Tónleikarnir
byrja stundvíslega klukkan 21.00 og er fólk hvatt til
að mæta snemma. Fram koma :
Einóma sem eru að klára sína aðra breiðskífu fyrir
eina virtustu ratónlistarfútgáfu Bretlands,
Shaha Mostar frá Thulemusik og Adrone, en þann dúett
skipa þeir félagar Ívar og Toggi.
Einnig munu Biogen og Exos koma fram og leika listir
sínar eins og þeim einum er lagið, en Biogen þarf
varla að kynna fyrir raftónlistarunnendum á Íslandi og
Exos er kunnugur fyrir breiðskífur sínar frá hinu
þýska útgáfufyrirtæki Force inc.