Jæja elskurnar mínar

Hvernig líst ykkur á að ég taki smá test á bíbs & blíbs svona rétt eins og Skurken tók test á 4*4 eins og hann kallar það ?!

Skurken hefur verið einn aðaltalsmaður bíbs & blíbs tónlistarinnar hér á raftonlist rétt eins ég hef verið einn aðaltalsmaður 4*4 stefnunnar.

Satt að segja hafði ég mjög gaman af tilraunum hans við að digga 4*4 þannig að nú vill ég að þið baunið á mig titlum svo að ég geti hlustað og dæmt.

Nú er ég endalaust latur maður og reyni að hagræða hlutunum að mínum þörfum eins vel og ég get þannig að ég vill að þið sendið mér þessa titla sem eiga að vera djúsí á netfangið bjornk@innn.is og ég tek á móti þeim með bros á vör.

Þar sem Skurken fékk endalaust mikið af titlum postaða til sín án þess að dæma þá, vonast ég til þess að þið nennið að senda mér nokkra titla og ég gef þeim einkunn hanans.