Þeir sem hlustuðu á Rokkland núna eftir 4 fréttir á sunnudaginn (endurtekið eftir 10 fréttir á þriðjudögum) heyrðu það að Fræbblarnir sömdu íslenskan texta við Rockaway Beach með Ramones og Marky Ramone söng það á plötu með 3 öðrum Ramones lögum sem voru þýdd á 3 önnur norðurlandamál. Mig langar gífurlega að koma höndum yfir þetta lag, og eflaust fleirum hér líka, þannig að ef einhver er svo heppin/nn að luma á þessu lagi væri algjör snilld ef viðkomandi gæti skellt því hingað inn?