Johnny Rotten Johnny Rotten er flestum pönk-áhugamönnum kunnugur. Þessi fyrrverandi söngvari bresku hljómsveitarinnar Sex Pistols verður viðfangsefni þessarar greinar. Ég vona að þið hafið gaman af.

Æska Rottens
John Joseph Lydon er fæddur 31. Janúar 1956 í London á Englandi. Johnny ólst upp í félagsmálaíbúð í Finsbury Park ásamt írskum foreldrum sínum og þremur yngri bræðrum. Þau voru kaþólikkar. Þegar Johnny var 7 ára fékk hann heilahimnubólgu sem orsakaði það að hann var í dái í hálft ár og þegar hann vaknaði mundi hann ekkert frá sínu fyrra lífi. Heilahimnubólgan og dáið ullu því að hann varð á eftir í skóla og gáfu honum einnig þetta starandi augnaráð sem seinna varð nokkurs konar einkenni hans. Oftar en einu sinni var honum vísað úr skóla fyrir “ruddalega” og (of) hreinskilna framkomu eða einfaldlega klippinguna sem hann var með. Hann kom sér auðveldlega í vandræði og var viðriðinn ýmsa smáglæpi.

Tímabil hans í Sex Pistols
Johnny var oft í búð Malcoms McLarens, SEX, (sem var eins konar kynlífsleiktækja/hjálpartækja-búð) sem var að reyna að koma nýrri hljómsveit sem kallaðist ‘Sex Pistols’ á kortið. Hann tók eftir Johnny þegar hann var í Pink Floyd bol sem krassað var á fyrir ofan ‘Pink Floyd’, orðin “I hate”. McLaren bauð Johnny að koma í áheyrnarpróf sem hann fór í og söng Eighteen eftir Alice Cooper ásamt glymskrattanum. Johnny var fljótt gefið sviðsnafnið Rotten út af því hversu hræðilegar tennurnar í honum voru (og eru).

Sex pistols gáfu út lagið “God Save the Queen” á silfurvaldaafmæli Elísabetu Drottningar II árið 1977. Þetta lag olli svo mikilli ringulreið og reiði almennings að eitt sinn var ráðist á Johnny úti á götu og hníf var stungið í löppina á honum, öðrum nánast í gegnum hendina og hann skorinn í andlitið með glerbroti. Það fyrsta sem gert var þegar hann kom á sjúkrahúsið var að hringja í lögregluna svo að hægt væri að kæra hann fyrir upptök af átökum.

Johnny samdi texta nokkurra laga sveitarinnar s.s. Anarchy In the U.K., No Fun og Liar. Hann var eini söngvari hljómsveitarinnar og spilaði ekki á hljóðfæri.

Johnny mælti með vini sínum John Ritchie (Sid Vicious) sem bassaleikara þegar Glen Matlock yfirgaf Sex Pistols. það var einmitt Johnny sem nefndi hann Sid Vicious eftir hamstrinum sínum (Sid the Vicious) sem beit Ritchie.

Árið 1978 hættu Sex pistols starfsemi.

Public Image limited
1978 stofnaði Rotten hljómsveitina Public Image Limited, sem entist í fjórtán ár. Sveitin var lofuð fyrir “mér er alveg sama hvað þér finnst” attitudeið og hvernig tónlistin þeirra var öðruvísi.

Framkoma hljómsveitarinnar í sjónvarpsþættinum American Bandstand er orðin að hálfgerðri goðsögn, en Rotten gafst upp á að mæma og fór bara af sviðinu og dansaði með áhorfendum í staðinn. Hljómsveitinni gekk ágætlega á breskum vinsældalistum en var oft slegin niður af endurútgefnum Sex Pistols lögum.

Johnny Rotten í seinni tíð
Johnny hefur tekist á við ýmis verkefni í seinni tíð. Hann hefur meðal annars komið fram í heimildarmyndinni ‘the Sex Pistols: The filth and the fury’ (sem btw er algjör snilld). Hann lék einnig í myndinni ‘Copkiller’ þar sem hann fór með hlutverk geðbilaðs ríks “drengs”.
Johnny hefur komið fram í fleiri myndum og þáttum sem verða taldir upp hér:
SORRY
The Belzer Connection
I'm a celebrity, get me out of here!
The Independent
Judge Judy
Rotten TV
John Lydon's megabugs
John Lydon goes Ape
John Lydon's Shark Attack
Reynebeau & Rotten

Johnny gaf út ævisögu sína ‘Rotten: No Irish, No Blacks, No Dogs’ árið 1994.

Diskar sem Johnny Rotten hefur verið á eða gefið út:
Never Mind The Bollocks, Here's The Sex Pistols (Sex Pistols)(Virgin, 1977)
First Issue (Public Image Ltd) (Virgin, 1978)
The Great Rock ‘N’ Roll Swindle (Sex Pistols) (Virgin, 1979)
Metal Box (Public Image Ltd) (Virgin, 1979 & 2006)
Some Product - Carri On Sex Pistols (Sex Pistols)(Virgin, 1979)
Second Edition (Public Image Ltd) (Virgin, 1980)
Paris Au Printemps (Public Image Ltd) (Virgin, 1980)
Flowers Of Romance (Public Image Ltd) (Virgin, 1981)
Live In Tokyo (Public Image Ltd) (Virgin, 1983)
Commercial Zone (Public Image Ltd) (PiL Records, 1983)
This Is What You Want…This Is What You Get (Public Image Ltd) (Virgin, 1984)
Album (Public Image Ltd) (Virgin, 1986)
Happy? (Public Image Ltd) (Virgin, 1987)
9 (Public Image Ltd) (Virgin, 1989)
The Greatest Hits So Far (Public Image Ltd) (Virgin, 1990)
That What Is Not (Public Image Ltd) (Virgin, 1992)
Kiss This (Sex Pistols) (Virgin, 1992)
Never Mind The Bollocks / Spunk (aka This is Crap) (Sex Pistols) (Virgin, 1996)
Filthy Lucre Live (Sex Pistols) (Virgin, 1996)
Psycho's Path (John Lydon) (Virgin, 1997)
The Filth And The Fury (Sex Pistols) (Virgin, 2000)
Jubilee (Sex Pistols) (Virgin, 2002)
Sex Pistols Box Set (Sex Pistols) (Virgin, 2002)
The Best Of British £1 Notes (Lydon, PiL & Sex Pistols) (Virgin/EMI, 2005)

Johnny er giftur Noru Forrester og eiga þau engin börn saman.

Takk fyrir lesturinn!
Tinna
Allir hlutir eru haldnir heimþrá til jarðarinnar og þess vegna falla þeir þangað þegar tækifæri gefst.