Hvernig er fólk að fíla nýja myndbandið ?

Þetta er MIchael Matijevic, söngvari hljómsveitarinn Steelheart að þenja raddböndin. Steelheart gaf út 2 plötur, en hætti eftir að Matijevic lenti í því að magnarastæða féll á hann á tónleikum, og var hann í mörg ár að jafna sig. Hrikalegt líka hvað hann slasaðist mikið.

Nokkuð lítt þekkt staðreynd um þetta 4 octave wonder er að hann syngur fyrir Mark Wahlberg í myndinni Rock Star, sem Jennifer Anniston úr Friends leikur einnig í.
Rock Star er nokkurs konar stæling á því þegar þungarokkhljómsveitin Judas Priest skipti út upprunalega söngvara sínum fyrir nýjan og yngri, sem enn er meðlimur eins langt og ég veit.