Ok, það er ekki beint líkt mér að hlusta á stuff eins og Britney og Justin og allt það þó að ég hlusti iðulega á FlassFM og FM957 ásamt því að hlusta mikið á drum ‘n’ bass en samt er ég bara búin að fá æði fyrir þessum tveim listamönnum.

Toxic, með Britney, er einfaldlega ógeðslega töff lag! Er bara oft oft oft búin að hlusta á það og fæ bara ekki leið á því… svo er Cry me a river með Justin Timberlake, það er bara geðveikt lag!
Það er einmitt svona lag sem allir vita hvað er en engin beint hlustar á það, en ég fór að hlusta á það fyrir nokkru og er bara virkilega að fíla það!