Ég er ekki vanur að hlusta á svona tónlist en ég var bara fyrir framan sjónvarpið. Sem ég geri heldur ekki oft, og þá var e-ð lag á Popp Tívi á FM 957 klukkutíma eða e-ð og það var lag með e-rjum gaur syngjandi Reggie-like rapp og hann leit út fyrir að vera Amish. Og hann var syngjandi um frið og ást. Ég hef ekki hugmynd um það hvað þetta lag hét eða með hverjum þetta var, ég veit ekki afhverju en ég verð bara að vita hvaða gaurar þetta voru. Þannig að ef e-r af ykkur veit hvaða Hljómsveit þetta var og með hvaða lag. Þá væri gott að fá að vita það..
Fyrirfram þakkir.