Britney Spears hefur ekki gert neina plötu síðan Greatest Hits platan hennar kom út, hún var náttúrulega að eignast barn og allt..Hún er gift Kevin Federline, og talað er um að hún ætli að taka upp Federline nafnið. Þetta hefur verið soldið stormasamt hjónaband, þau voru “seperated” í smá tíma en það lagaðist allt og ég held að þetta hjónaband eigi ekki eftir að vara mjög lengi en það er bara mín skoðun.Hún varð þunglynd eftir að hafa átt barnið þar sem Kevin er ekki oft heima og hún segjist þurfa að ala barnið upp ein. En hvað gerist svo þegar hún ætlar aftur út í bransann? Margir hafa spáð henni botninum..og kannski fer hún þá út í kvikmyndirnar, mér fannst Crossroads ekkert meistaraverk :S en kannski býðst henni eitthvað almennilegt. Britney hefur gefið út 4-5 plötur ef ekki fleiri og hefur verið frekar vinsæl. Mér finnst hún vera afbragðs söngkona en er ekkert fan neitt. En hvað finnst ykkur - haldiði að hún fari á botninn eða er hún nú þegar komin þangað?
Eða fer hún kannski á toppinn?
-Cassandra