Já… Hilary og Haylie Duff hafa nú aldelis slegið í gegn saman. Þær sungu saman lagið Our lips are seald sem sló heldur betur í gegn og er til myndband við því lagi. Hilary hefur þó gefið út þrjá geisla diska en Haylie enga, þær eru báðar á fullu að leika, og einnig er að koma mynd sem þær leika saman í sem heitir Material Girls og eru að ganga sögur um að þær Duff systurnar ætli að syngja lagið Material Girl eftir Madonnu fyrir þessa nýju mynd sína. Haylie sem er 19 og Hilary sem er 17 hafa báðar verið að syngja og leika síðan þær voru mjög ungar og vildi Hilary verða leik og söngkona vegna þess að stóra systir hennar Haylie vildi það og Haylie er auðvitað fyrimynd fyrir litlu systur sína. Það hefur oft verið talað um að Hilary verði hin næsta Britney Spears en Hilary neitar því alveg. Núna eru væntanlegar 5 myndir með Haylie Duff og 3 með Hilary Duff, reyndar 4 með Hilary hér á landi þar sem Raise Your Voice er ekki komin en myndirnar sem eru að koma með Hilary heita The Perfect Man, Material Girls og Outward Blonde og með Haylie eru að koma The After Killer, The House , I Remember, Material Girls og Dishdogz. Haylie hefur kanski aldrei gefið út plötu en hún samdi tvö lög á fyrri disk systur sinnar sem heitir “metamorphosis”. Og svo söng hún fyrir myndina A Cinderella Story lag sem heitir One in this World. Hún söng einnig fyrir Lizzie mcGuire The Movie þar söng hún lag sem heitir Girl in the Band, og í myndinni Raising Helen söng hún lagið Sweetest Pain. En Haylie semur ekki bara lögin heldur Hilary líka hún samdi til dæmis lögin haters og Mr. james Dean á nýju plötuna sína.