Hefur einhver hér heyrt um norska stelpu sem heitir Maria Mena ?
Hún er sautján ára og er frekar fræg í Noregi. Ég keypti diskinn hennar þegar ég var þar um daginn og það er eitt myndband á honum, við lagið You're the only one. Og ég get bara ekki séð betur en að það sé Þorvaldur Davíð verslógaur sem er að leika kærastann hennar í því. Nú langar mig að vita hvort einhver hefur séð þetta myndband og hvort þetta sé í alvörunni hann ?
En annars er diskurinn bara mjög góður, soldið í líkingu við Natalie Imbruglia, skemmtileg og soldið öðruvísi lög en heyrast í útvarpinu í dag …
<br><br>————————————————————————————————–
Ef að þú ert í farartæki sem ferðast á ljóshraða .. og kveikir á ljósunum .. hvað gerist?

Finnst hænum “gúmmí-fólk” vera fyndið?

Fyrst að hvítvín er gott með fiski .. eru þá ljós vínber góð með sushi?

Ef að mállaus krakki blótar .. þarf hann þá að þvo sér um hendurnar?

Skildu bómullar-akrar “hlaupa” þegar að það rignir?