Sugababes koma

Stúlknasveitin Sugarbabes halda hljómleika hér á landi 8.apríl í Laugardalshöll.Sveitin þykir ein besta-og framsæknasta - poppsveit samtímans en hún er skipuð kornungum stúlkum sem reka sveitina upp á sitt eindæmi sem þykir sjaldgæft í poppveruleika nútímans.Sveitin hefur gefið úr 3 plötur sem selst hafa í mörgum milljónum eintaka, unnið til fjölda verðlauna og átt toppsmelli bæði austan hafs og vestan.