Þetta er ekki grín en Britney Spears giftist í nótt(aðfaranótt 4 jan) æskuvini sínum sem heitir Jason Alexander. Held að ég sé með rétt nafn.
Núna í dag (semsagt dagin eftir) er verið að undirbúa skilnaðinn!
Þau ákváðu að gifta sig eftir að hafa verið að djamma um nóttina og giftu sig í lítilli kapellu sem er opin allan sólarhringinn. Þetta var svona skyndibrúðkaup, og þau fengu engar brúðkaupsgjafir.
Pælið í þessu. Ég vissi ekki að það væri hægt að vera svona ruglaður,
enda er verið að undirbúa skilnaðapappírana núna.
Við verðum svo bara að bíða og sjá hvernig þetta fer:)