“Þrá”



hundrað sinnum meira en ég get gefið

hundrað sinnum oftar en ég gef af mér

einhvern vegin á ég ekki skilið

þessa náð



nærvera þín fyllir mig af þrá í meira

nærvera þín er að verða mér um megn

spurningunum fjölgar en ég hef þó ekkert svar



einskis

óska ég mér nem´að

eiga eitthvað sem að

læðist inn í hugann

og sefar þessa þrá



einhvern vegin hef ég ekki styrk lengur

einhvern vegin get ég ekki séð þig

ljósið er að dofna en ég hef

eina ósk



einskis

óska ég mér nem´að

eiga eitthvað sem að

læðist inn í hugann

og sefar þessa þrá

svo mig geti rekið

í hafinu og tekið

höndum hugsun mína

og fundið hver ég er