“Losti”

hún hafði aldrei séð hann fyrr
í augnablik stóð tíminn alveg kyrr
ætlaði og vildi fá
vildi fá að reyna

hann hafði aldrei prófað neitt
ekki reynt og ekki þorað yfirleitt
löngunin þó alltaf smá
löngun til að segja já

gerum saman það sem ekki má
gerum saman það sem enginn má sjá og má heyra
engin leyndarmál milli þín og mín
þetta er losti

ein í huga sínum saman heim
í heiminn sem var skapaður af þeim
engin orð og ekkert mál
engin loforð ekkert ástarbál

gerum saman það sem ekki má
gerum saman það sem enginn má sjá og má heyra
engin leyndarmál milli þín og mín
þetta er losti (við fyrstu sýn)

veröldin snýst í hringi
um okkur tvö ein
svo góð tilfinning
uppi í skýjunum
í hæstu hæðunum
svífum um

gerum saman það sem ekki má
gerum saman það sem enginn má sjá og má heyra
engin leyndarmál milli þín og mín
þetta er losti




<br><br><font color=“red”>_______________________________________________

<a href="http://kasmir.hugi.is/mandy“>kíkið á síðuna mína </a>

_______________________________________________
</font>

<font color=”purblue">
Efað þið viljið Smallville áhugamál sendið mér skilaboð :)

Búið endilega til ykkar topp 10 lista fyrir popptónlist og sendið mér:D
</font