Þrá


100 sinnum meira en ég get, gefið
100 sinnum oftar en ég gef, af mér

Einhvernvegin á ég ekki skilið, þessa náð
Nærvera þín fyllir mig af þrá, í meira
Nærvera þín er að verða mér um megn

Spurningunum fjölgar en ég sé samt ekkert svar

Einskis, óska ég mér nema, eiga eitthvað sem að,
læðist inní hugann og sefar þessa Þrá

Einhvernvegin hef ég ekki styrk, lengur
Einhvernvegin get ég ekki séð þig
Ljósið er að dofna en ég hef eina ósk

Einskis, óska ég mér nema, eiga eitthvað sem að,
læðist inní hugann og sefar þessa Þrá
Svo mig geti rekið, í hafinu og tekið hönd um hugsun mína og fundið hver ég er.

Einskis óska ég mér nema, eiga eitthvað sem að, læðist inn í hugann og sefar þessa þrá.

“A smile is the curve that sets everything straight.” -