DJAMMIÐ

Föstudagskvöld loksins helgin komin
eftir langa vinnuvikuna.
Við lifum á öld þar sem er til siðs
að skemmta sér rækilega.

Ég fer því á ball og þar er einhver hljómsveit
sem spilar af lífi og sál
kemst svo á rall og dett svo íða
þegar söngvarinn öskrar SKÁL!

Fáðu þér öl og skemmtu þér með okkur í kvöld…

Síðan fór allt af stað
Óó engu get ég logið um það
Djamm og djús og kvennastúss, partý innan og utan húss
Allt varð brjálað, svaka stuð
hljómsveitin var snar rugluð

Allir virtust missa sig er Gleðisveitin steig á svið
og öskraði yfir allt: Fáðu þér öl og skemmtu þér með okkur í kvöld…