Það er nótt, nú gerist það - myrkrið skellur á
Það er gott að leika sér - læðast til og frá.
En vittu til það er hættulegt - augun fara á stjá.
Á götuhornunum þær blikka þig - svo blíðlegar að sjá.

Svo undarlegt - þú getur ekkert gert.

Í dulargervi drottningar
draga þig hér inn
Skilja ekkert eftir sig
nema varalit á kinn

Út um allt, drottningar - sem allir vilja fá.
Sigla um, freygátur - stefna ströndu á.
En vittu til, það er hættulegt - að horfa í augun blá.
Þú sogast inn í undraheim - þar sem allt er aftan frá.

Svo ótrúlegt - þú getur ekkert gert.

Í dulargervi drottningar
draga þig hér inn
Skilja ekkert eftir sig
nema varalit á kinn
Í dulargervi allsstaðar
varir bærast hljótt
Á morgun ertu örmagna
eftir þessa nótt.

Svo undarlegt - þú getur ekkert gert.

Þú lokar augum og allt er eins og var.
Opnar augun og hún er ennþá þar.

Í dulargervi…..
<br><br><b><i><u> Sendið mér </b></i></u> <a href="http://www.hugi.is/ego/bigboxes.php?box_type=skilabodaskjodan&page=new_msg&to_user=Pemma“>Póst</a>

<b><i><u>Ég er Ofurhugi Nr. 1 á </b></i></u> <a href=”http://www.hugi.is/hp">Harry Potter</a