Halló.. ég veit nú ekki hvort þetta á við undir Popptónlist.. en ég vissi bara ekkert hvert ég ætti að setja þetta!

Ef þið hafið fylgst með sjónvarpinu nýlega þá hefur auglýsing frá Samlíf eða eitthvað verið í spilun og með henni lagið Líf sem er af samnefndri plötu með Stefáni Hilmarssyni.

Ég verð bara að segja að ég elska þetta lag! Mér finnst þetta fallegasta lag í heimi og ég ætla að setja textan af laginu með..

Ljós í myrkri, lang og mjótt
markar upphafið hjá þér.
Allt í einu ertu kominn
inní heiminn, lítill dofinn.
Dregur andann hið fyrsta sinn

Þú ert vorið, vindur hlýr
vekur hjá mér nýja kennd.
Og ég græt í gleði minni,
þú gefur mér með návist þinni
svo miklu meira en trúði ég

Líf
ljómi þinn er skínandi skær.
Líf
augu þín svo saklaus og tær.
Fegurra en nokkuð annað.
Áhrifin ótvíræð:
ég svíf
því ég á
þetta líf

Óskadraumur -ásýnd þín.
Ekkert jafnast á við það.
Þó mig þúsund drauma dreymi
þessa stund ég elltaf geymi
í mínu sinni ókomin ár

Líf…

textinn tekinn af síðunni
http://www.mmedia.is/stefanhilmars/

kv. hodd