Ég hef verið að hugsa um það þegar ég er að hlusta á lög með Tatu og horfa á myndböndin, hvort þær séu ekki bara tvær til að geta verið lesbíudúett. Mér sýnist Julia (dökkhærða) bara vera að syngja í lögunum en Lena (rauðhærða) bara vera til skrauts svo þær geti verið lesbíudúett! Ég veit ekki hvort það er þannig en mér finnst það allavega! En svo eru líka alltaf sögurnar um kynlífið þeirra að stigmagnast og núna er það komið það langt að þær geri það 3 sinnum á dag!