Þannig er mál með vexti að vinkona mín var alltaf að tala um sk8ter boy með Birgittu Haukdal og ég hélt að hún væri bara að bulla með að Birgitta syngji sk8ter boy, þannig að ég fékk hana til að hringja á Fm957 og byðja um þetta lag og það var ekkert mál. En síðan biðum við í klukkutíma eftir laginu en ekkert gerðist!
En við erum búnar að prufa að hringja milljón sinnum á fm og fá þetta lag en það er aldrei spilað það. Svo að ég ákvað í dag þegar ég hafði ekkert að gera að prufa að hringja á fm og talaði við gaurinn og sagði að þetta lag væri aldrei á leiðinni að koma en síðan kom það! Og ég komst að því að hún Birgitta syngur illa á ensku! Allavegna þetta lag.
Hún söng þetta lag í Eldhúspartý. Þannig að næst þegar þið biðjið um óskalag biðjið þá um þetta lag og segið að þið VILJIÐ fá þetta lag……..

Kv.
Hrund