Nýja platan komin í verslanir um allt land!!

Ekki hefur komið út stór plata frá Landi og Sonum síðan “Herbergi 313” kom út haustið 1999, svo að nú er fagnað á heimilum hljómsveitarmeðlima.

Fyrstu 2000 eintökin verða svokallaðar “Limited Edition”, en á þessum eintökum verður aukaefni s.s. frumupptökur af nokkrum lögum á plötunni, “unplugged”-útgáfur og margt fleira.

“LE” eintökin verða auðkennd með öðru albúmi, þannig að ef þú ert safnari er skylda fyrir þig að eiga eitt slíkt.