Nýtt kerfi ;) Góðan dag,

Ég hef ákveðið að taka upp nýtt kerfi sem að verður uppfært einu sinni til tvisvar sinnum í viku. Það virkar þannig að ég bæti inn á lista yfir helstu popphljómsveitir á landinu hvar og hvenær þær eru að spila á tónleikum eða böllum.

Sumar hljómsveitir gefa ekki upp á netinu hvenær þær eru að spila þannig að ég bið einhvern meðlim úr þeim hljómsveitum að senda tölvupóst á auglysingar@bjossi.is. Og ég bæti þá þeirri hljómveit inn á listan. Ef að svo vill til að einhver hljómsveit vill ekki vera þarna inni þá bið ég hana líka um að láta mig vita þó að mér finnist það ekki líklegt.

Kveðja,
bobobjorn