Í svörtum fötum Í svörtum fötum er ein af fáum hljómsveitum þar sem enginn einasti meðlimur hefur verið með frá upphafi. Á þeim fjórum árum sem liðin eru frá stofnun hennar hefur verið skipt einu sinni um söngvara, gítar-, bassa- og hljómborðsleikara og tvisvar um nafn, tónlistarstefnu og trommuleikara !

Vorið 1998 var planið að búa til órafmagnaða hljómsveit og var þá mikið spekúlerað í artistum eins og Sade, Toto, Anne Lennox o.fl.. Brátt fóru núverandi meðlimir að týnast inn, fyrstur kom Áki, síðan Einar og í þeirri mynd kom hljómsveitin einu sinni fram undir nafninu Gullfiskarnir. Næst var skipt um gítarleikara og var félagsmiðstöðvafrömuðurinn Hrafnkell Pálmarsson kallaður til. Þegar söngkonan Þóra varð að hætta vegna barnsburðar haustið 1998 var 21 árs galgopi að nafni Jón Jósep fenginn í prufu. Hann heillaði alla með sínu lífsglaða viðmóti og kraftmiklum söng og var því ráðinn í bandið.

Var nú æft af miklu kappi og ekki er lokum fyrir það skotið að svört Soul-tónlist í anda James Brown, Marvin Gaye, Sam & Dave og Aretha Franklin hafi átt upp á pallborðið. Soul og stuðbandið Í svörtum fötum var orðið að veruleika og hélt sína fyrstu tónleika á Kaffi Reykjavík 1. janúar 1999.

Klæðnaðurinn á þessum tíma var einfaldur; hvít skyrta, svart bindi, vel bónaðir lakkskór og svört jakkaföt frá Sævari Karli. Nafnið er komið frá Jónsa sem hafði alltaf dreymt um að búa til Fönkband undir nafninu Fönk í svörtum fötum. En þar sem við spiluðum lítið fönk þá var “… í svörtum fötum” látið duga og var þá hugmyndin að geta skeytt hverju sem er fyrir framan nafnið.

Um vorið 1999 tók Kári Árnason við sem trymbill. Hann trommaði með okkur í tæpt ár en yfirgaf okkur í janúar 2000. Þá var röðin komin að hinum kankvísa trommara, honum Dodda sem hefur barið húðirnar allar götur síðan.

Árið 2000 var mjög gott fyrir Í svörtum fötum. Hvar sem við lékum fengum við frábærar undirtektir og hróður hljómsveitarinnar fór stöðugt vaxandi. Því ákváðum við í desember að gefa út plötuna Verkefni 1 sem farið hefur sigurför um Gullbringu- og Kjósasýslu og fæst í öllum betri hljómplötuverslunum.

Stíll hljómsveitarinnar hefur mikið breyst á tveimur árum. Bindin hættu að sjást og bolir í öllum litum komu í stað hvítu skyrtunnar. Meðlimir fóru jafnvel að sjást á strigaskóm á sviðinu. Tónlistarstefnan tók stakkaskiptum og vinsæl tökulög náð yfirhöndinni á kostnað gömlu Soul-laganna. Við gleymum þó aldrei upprunanum og erum alltaf með eitthvað svart í pokahorninu.

Lagið Nakinn kom út í apríl 2001 og var fyrsta lag hljómsveitarinnar sem náði almennri hylli enda var vel vandað til verksins með dyggri aðstoð Haffa í SSSól. Lagið náði 2. sæti á Íslenska listanum sem er harla gott í fyrsta skoti.

Í september 2001 urðu kaflaskil í sögu hljómsveitarinnar þegar við skrifuðum undir samning við Skífuna upp á 4 plötur. Nú þegar eru upptökur á fyrstu plötunni hafnar og von á því að hún komi út haustið 2002.

Í desember 2001 sendi hljómsveitin frá sér sitt fyrsta jólalag sem nefnist “Jólin eru að koma”. Íþróttasamband fatlaðra gaf lagið út á samnefndri plötu. Við lagið var gert glæsilegt myndband og vonandi hefur lagið fest sig í sessi sem ómissandi þáttur í jólaundirbúningi landsmanna.

Árið 2002 festi í Svörtum fötum sig í sessi sem ein vinsælasta hljómsveit landsins. Febrúar og mars mánuðir það ár verða seint slegnir út því á þessum 59 dögum kom hljómsveitin 42 sinnum fram, auk þess að fara saman eina utanlandsferð. Hljómsveitin fékk viðurkenningu sem “Bestir á balli” á Hlustendaverðlaunahátið Fm 957 og um sumarið hófust upptökur á fyrstu alvöru plötu hljómsveitarinnar sem fékk nafnið “Í svörtum fötum”. Dag sem dimma nátt sat í byrjun desember á toppi beggja vinsældalista landsins, á Steríó og Fm 957.

Á árinu 2003 stefnir hljómsveitin að því að gera aðra plötu, halda ennþá flottari útgáfutónleika, spila um allt land og einnig eru ýmis járn í eldinum sem ekki er hægt að greina frá á þessum tímapunkti.
Tell your boyfriend if he says he's got beef,