Beyonce Knowles
-stjarnan sem hefur langað að vera söngkona
síðan hún var fjögurra ára-


Söng- og leikkonan Beyonce Knowles hefur slegið í gegn undanfarin ár. Söngkonan unga er í hljómsveitinni Destiny's child ásamt söngkonunum Kelly Rowland og Michelle Williams. Þær gáfu út þriðju plötuna sína árið 2001 sem bar nafnið “Survivor” en sú plata seldist í 663.000 eintökum á einni viku og komust þær í fyrsta sæti Billboard listans.

Beyonce hafði frá blautu barnsbeini unun af að koma fram og syngja. Nafn hennar birtist fyrst á prenti þegar hún var aðeins sjö ára, í fréttatilkynningu í Houston Chroicle, þegar hún var tilnefnd til Sammy verðlauna, en það eru verðlaun fyrir skemmtiatriði í Houston.

Tónlistin var alltaf í fyrsta sæti hjá Beyonce. Þegar hún var barn elskaði hún að syngja og búa til dansa, helst með vinkonum sínum, þeim Kelly Rowland og LaTavia Roberson. Sviðið sem þær völdu sér til að sýna afraksturinn var oftast hárgreiðslustofa Tinu, mömmu Beyonce.
Beyonce gæti hafa fengið tónlistarhæfileikana í vöggugjöf frá móður sinni, en hún var söngkona í hljómsveit í Houston þó að hún hafi aldrei verið atvinnusöngkona. Pabbi hennar, Mathew, sem vann við að selja lækningartæki og -tól, fékk líka brennandi áhuga á ómótuðum tónlistarhæfileikum dóttur sinnar.

Miklar erjur hafa verið undanfarin ár hjá hljómsveitinni frægu DC, nokkrar hafa hellst úr lestinni á leið upp á toppinn.
Lögð var kæra á Beyonce og foreldra hennar um miðjan mars 2000 en það voru þær LeToya og LaTavia, fyrrverandi meðlimir hljómsveitarinnar sem lögðu fram kæruna. Í dag eru stelpurnar þrjár þær Beyonce, Michelle og Kelly að mestu leyti að fást við sólósöng og fleira þó maður heyrir annað slagið í þeim :)

Beyonce er einnig farin að leika í kvikmyndum t.d. í Austin Powers 3 þar sem hún lék svala njósnarann Foxy Cleopötru og hlakka ég til að sjá aðra mynd með henni. Einnig er hún að gefa út plötu sem kemur út í sumar.

Hér eru nokkrar staðreyndir um skvísuna!!

Fullt nafn: Beyonce Giselle Knowles
Fædd: 4. september, 1981
Fæðingarstaður: Houton, Texas
Stjörnumerki: Meyja
Foreldrar: Tina og Mathew Knowles
Systir: Solange, sem dansar með DC. (Kelly Rowland hefur búið hjá Knowles fjölskyldunni síðan hún var níu ára)
Ætlaði að verða: Söngkona (Síðan hún var fjögurra ára)
Langar mest til að hitta: Opruh Winfrey.

Lifðu í lukku en ekki í krukku!!!