Góðan og blessaðan daginn /eða kvöldið!!
Ég ákvað að senda hérna inn grein um eitthvað annað en Blue, Birgittu Haukdal, Írafár og co út af því að ég er búin að fá leið á svoleiðis sulli hérna!
Popptónlist er neflilega miklu meira heldur en það allt sull!!
Þannig að ég ákvað að skrifa smá upplýsingar um COLDPLAY!

Smá upplýsingar um meðlimi..
Nafn: Chris Martin
Fæðingardagur:2 Mars 1977
Fæðingarstaður:Exeter, (Devon, UK)
Hlutverk í Coldplay:Söngvari,píanó,gítar og munnharpa
Skóli: University College London

Chris Martin ólst upp í Devon. Hann byrjaði að spila á gítar 15 ára gamall og hann hefur ekki hætt að glamra síðan!
Eftir það var ekkert mál fyrir hann að spila á píanó og stundum leikur hann á munnhörpu.
Hann uppgvötaði listina að spila á rafmagnsgítar á Norður -Ameríku túrnum árið 2001.

Nafn:Guy Berryman
Fæðingardagur:12.april 1978
Fæðingarstaður:Kirkcaldy (Fife, Scotland)
Hlutverk í Coldplay:Bassi
Skóli:University College London (hætti eftir eitt ár)

Guy Berryman byrjaði að spila á bassa 13 ára gamall.

Nafn:Jonny Buckland
Fæðingardagur:11.september 1977
Fæðingarstaður:London
Hlutverk í Coldplay:Gítar
Skóli:University College London

Gítarleikarinn Jonny Buckland byrjaði að spila á gítar 11 ára gamall.


Nafn:Will Champion
Fæðingardagur:31.júlí 1978
Fæðingarstaður:Southampton
Hlutverk í Coldplay:Trommur
Skóli:University College London

Will spilaði áður á gítar en þegar það vantaði trommara í bandið bauð hann sig fram í það.


Meðlimirnir í Coldplay hittust fyrst í University College of London árið 1996. Þeir urðu bestu vinir og stofnuðu Coldplay!
Þeir voru allir í sömu byggingunni í háskólanum og fengu nafnið “Coldplay” frá Tim einum af skólafélaganum .

Plötur með Coldplay:
Parachutes
A Rush of Blood to the Head
Brothers & Sisters
Blue Room

Vona að þið hafið haft gaman af þessari grein.
Kv,
Agatha
————————————————-