Undanfarnar vikur hefur farið að bera meira og meira á þessari hljómsveit og því er tilvalið að fjalla um hana.

Hljómsveitin samanstendur af fjórum fjallmyndarlegum piltum sem kalla sig Omarion, J Boog, Lil' Fizz og Raz B og hún kemur upprunalega frá Los Angeles. Þeir voru uppgötvaðir af Chris nokkrum Stokon, sem bauð kom þeim inn í tónlistabransann. Sumir vilja nú samt meina að þeir hafa komist lengra á útlitinu en með tónlistinni. Engu að síður sömdu þeir 3 lög alveg sjálfir á disknum þeirra, en menn eins og P.Diddy komu þar við sögu. Það verður spennandi að sjá hvað gerist næst hjá þeim, en á meðan er tilvalið að fræðast aðeins um drengina…


Omarion: 17 ára. fæddur þann 12. nóvember 1985 og er frá Los Angeles. Heitir fullu nafni Omari Ishmael Grandberry. Draumadísin hans á að vera falleg, indæl, gáfuð og á vita hvað hún vill. Uppháhalds flík hans úr fataskápnum er leðurjakki. Hann elskar ruslmat og Janet Jackson, en Michael Jackson var sá sem veitti honum mestan innblástur.


Uppáhalds-
litur: rauður
leikari: Robin Williams
kvikmynd: Brave Heart
íþrótt: körfubolti
körfuboltalið: Lakers
fatahönnuður: Ice Berg, Coggi
líkamshluti: augu
leið til að stríða hinum strákunum: fela fötin þeirra
námsgrein í skóla: enska

Í frístundum sínum spilar hann á gítar og píanó, syngur, leikur sér í Playstation 2, spilar körfubolta og slæst við vini sína. Ef hann væri dýr, þá væri hann tígrisdýr.


J Boog: 17 ára, fæddur 11 ágúst 1985 og er frá Los Angeles.. Heitir fullu nafni Jarell Damonte Houston. Hann er sportýpa og er að eðlisfari mjög afslappaður alltaf. Ef hann væri dýr, þá væri hann ljón - hann vill stjórna öllu. Draumadísin hans á að vera skemmtileg og fjörug, íþróttatýpa. Hann er kvennagullið í hljómsveitinni.

Uppáhalds-
matur: McDonalds
litur: rauður
bíll: Ferrari
hljómsveit: IMX
leikari: Jennifer Lopez
kvikmynd: Grease
íþrótt: fótbolti
körfuboltalið: Philadelphia 76'ers
fatahönnuður: Ecko
námsgrein í skóla: myndmennt

Hann hlustar mikið á J.Lo, Snoop Dogg og Jay Z, en IMX og Michael Jackson hafa veitt honum mestan innblástur. Í frístundum spilar hann körfu- og fótbolta, spilar í Playstation 2 eða slæst við hina strákana. Hann finnst gaman að hitta frægt fólk og borða á fínum veitingahúsum, semja lög og læra nýja dansa. Hann elskar Janet Jackson og Halle Berry.


Lil'Fizz: 17 ára, fæddur 26. nóvember 1985 og er frá Los Angeles. Heitir fullu nafni Druex Pierre Fredericks. Hann er rapparinn í grúbbunni. Hann pælir mikið í fötunum sem hann gengur í, og finnst æðislegt að versla.

Uppáhalds-
litur: blár
hljómsveit: IMX, Snoop Dogg og Jigga
áhugamál: lestur, versla, jaðaríþróttir, freestyle, Playstation 2
íþrótt: fótbolti, körfubolti
leikari: Denzel Washington, Nia Long
kvikmynd: Boyz in the Hood
íþróttalið: Lakers, Dodgers, Cowboys
fatahönnuðir: Avirex, Beefy White T s, Phat Farm, Roca wear
bíll: Benz CLK 430
námsgrein í skóla: saga

Draumdísin hans á helst að vera stuðbolti og orkumikil, með falleg augu og sætt bros. Þeir sem hafa veitt honum mestan innblástur eru IMX, Kriss Kross og Michael Jackson. Ef hann væri dýr þá væri hann kamelljón. Hann hlustar mikið á tónlist, og þá helst á Jigga, Snoop Dogg, J.Lo, R Kelly og að sjálfsögðu á B2K.


Raz B: 17 ára, fæddur 13 júní 1985. Kemur frá Cleveland og heitir fullu nafni De'mario Monte Thornton. Hann elskar sumarið og gengur í sumarfötum allan ársins hring. Í frístundum sínum finnst honum gaman að borða, sofa, spila í Playstation 2 og spila körfubolta. Draumadísin hans á að bara að vera vinur hans, skilningsrík og skemmtileg og með markmið. Ef hann væri dýr þá væri hann blettatígur.

Uppáhalds-
bíll: C70 Volvo
litur: blár
hljómsveit: IMX
áhugamál: söngur, safna gömlum geisladiskum, körfubolti
leikari: Halle Berry
kvikmynd: Cruel Intentions
íþrótt: körfubolti
körfuboltalið: Lakers

Konurnar í lífi hans eru Jennifer Lopez, Halle Berry og Janet Jackson. Sá sem hefur veitt honum mestan innblástur er IMX og Michael Jackson. Hann hefur gaman af því að verlsa og eiga nóg af peningum. Geisladiskarnir í græjunum eins og er, eru diskarnir með Jennifer Lopez, B2K, R.Kelly og IMX.