Jennifer Lopez Nafn: Jennifer Lopez
Vinna: leikari og söngvari
Fæðingardagur: 24 Júlí 1970
Fæðingarstaður: Bronx, N.Y., USA
Hæð: 5' 5"
Hárlitur: Brúnn
Augnlitur: Brúnn


Jennifer Lopez er geimvera !

- Vísindamaður einn í Sviss hefur gert ótrúlega uppgötvun sem hann hefur ákveðið að deila með heiminum. Dr. Henrik Schenkel hefur verið á kafi í að rannsaka fljúgandi furðuhluti og tengsl jarðarbúa við geimverur. Hann segist fullviss um það að geimverur stundi það að brottnema jarðarbúa og koma örflögu fyrir í líkama þeirra og þar með hafi þær stjórn á viðkomandi einstaklingum. Hann segir jafnframt að viðkomandi einstaklingar viti ekkert af brottnáminu vegna þess að geimverurnar þurrki út allar minningar þeirra um brottnámið eftir að því lýkur.
Nú er þessi geðtæpi vísindamaður að halda því fram að stórstjarnan Jennifer Lopez sé ein af þeim útvöldu sem að hafi verið brottnumin og geimverurnar hafi komið fyrir örflögu í rassinum á henni. Geimverurnar eiga svo að hafa gert það að verkum að Jennifer Lopez hafi náð þessum frama sem raun ber vitni, vegna þess að geimverurnar vilji eiga leiðandi fulltrúa á jörðu niðri sem hafa áhrif á annað fólk. Hann heldur því statt og stöðugt fram að Jennifer sé með þessa örflögu í rassinum og að hann sé sá eini sem að hafi þekkingu til þess að fjarlægja hana.

Þetta fann ég á popptíví.com