Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Rússinn

í Battlefield fyrir 20 árum, 7 mánuðum
í víetnam var þó hlutfallið 1/50 USA í hag þ.e. ef þú skilur þetta ekki þá drápu USA 50 víetkonga fyrir hvern 1 sem þeir misstu auk þess þá voru gerði samningar 1973, svo kallaðir Parísarsamningar og megnið af bandaríska hernum var sent heim eftir það, N-víetnamar stóðu ekki við samningana og því fór sem fór, en USA vann alla helstu orrustur sem urðu í víetnam. Afganista og Írak eru gott dæmi um hæfni hers í stað stærðar. Enda hefur þar gengið mjög vel að taka svæði. Þegar USA of UK tóku...

Re: Rússinn

í Battlefield fyrir 20 árum, 7 mánuðum
já hann barðist þar með slökum árangri, ekki gleyma því að hann var sendur heim með skottið milli lappanna 1996 og svo þegra þeir réðust inn aftur þá var taktíkin að umkringja svæði eins og Grosní og svo sprengja það í tættlu

Re: Rússinn

í Battlefield fyrir 20 árum, 7 mánuðum
T-90 er svo sem skít sæmilegur, en lykilorðið hjá þér er í höndum hæfra áhafna. Ekki mikið um það hjá rússum.

Re: Kostir Frjálshyggju

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Ég er að stunda nám við lögfræði og velti því frekar upp spurningunni um lög og réttmæti þeirr, tilgangi og svo þeirri eylífu spuriningu hvað eru lög? Réttarspeki er þvi miklu meira mitt fag, þar sem fjlallað erum réttlætið. Þú ættir að senda mönnum á borð við Friðbjörn Orra bréf um þetta. Hann er einn af stofnendum frjálshyggjufélagsins á Íslandi og er auk þess hagfræðingur.

Re: Kostir Frjálshyggju

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Ég er alveg sammála þér að grunnskólamenntun sé mikilvæg en ég tel það bara ekki hlutverk ríkisins að mennta alla. Menntun verður líka meira virði þegar fólk er ekki skildað til að mennta sig.

Re: Kostir Frjálshyggju

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Ef þú ætlar að þvinga aðra til að gera eitthvað sem þú vilt ekki, hvernig væri að gera það þá ekki. Auk þess værir að beita aðra þvingunum. Frjálshyggjumenn hafa aldrei sagt að allar þvinganir eigi að hverfa enda þarf að þvinga þann sem beitir aðra ofbeldi. Því segum við og höfum alltaf sagt að sá sem virðir ekki frelsi annar missir rökin fyrir eigin frelsi. Ef þú telur í lagi að borga 10% skatt þá er það þitt mál en ekki neyða mig til þess. Það skiptir heldur ekki máli hvort við teljum...

Re: Rússinn

í Battlefield fyrir 20 árum, 7 mánuðum
hahahahaha “sem dæmi að þeir eru með stærsta og sterkasta skriðdrekaflota heimsins” kannski stærsta en ekki sterkasta. Það er mikill munur að vera með stóran her og að vera með góðan og öflugan her.

Re: Kostir Frjálshyggju

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Ég vil taka það fram að minn málflutnignur er ekkert líkur þessum þætti þarna er klárlega gaur á ferð sem er geðveikur og hann hefur eina skoðun á því hvernig fólk á að lifa sínu lífi og allt annað er synd eða eitthvað. Frjálshyggjumenn skipta sér ekki af því hvernig hver og einn lifir sínu lífi við einfaldlega viljum að fólk beri sjálft ábyrgð á gjörðum sínum en bendi ekki á aðra og komi ábyrgðinni á þá. Þessi þáttur er í raun líkari jafnaðarstefnu þar sem jafnaðarmenn telja sig vita betur...

Re: Kostir Frjálshyggju

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Afhverju ekki?

Re: Kostir Frjálshyggju

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Bandaríkin eru nú engin mekka frjálshyggju, þar er margt frjálst en ríkið er nú líka með vasana í allt of mörgu þar í landi. Í skólamálum eru þeir tildæmis í 8 sæti yfir hlutfall einkaskóla og þeir eru flestir á háskólastígi enda er talið að bestu háskólar í heiminum séu í USA. Þetta með vélarnar var víst rétt hjá þér þú varst ekki að spyrja um það, það var víst annar sem gerði það. Ég er bara að svara spurningum og gagnrýni frá svona 20 mans svo ég á til að ruglast. Hvað varðar launamál þá...

Re: Kostir Frjálshyggju

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Ég er búinn að svara þér með skóla annar staðar svo sleppum því hér. “Jú, þú ert þvingaður til þess því að í því fellst gríðarlegur ávinningur fyrir samfélagið.” Þessi setning þín á ekki einu sinni við hér, ekki nema þú sért að hugsa eitthvað meira þarna á bakvið sem þú hefur ekki skrifða niður. Þú vilt svo draga mörkin við ofbeldi hér og þar, þar sem ÞÚ telur að setja eigi þau. En þá ertu að viðurkenna að það sé í lagi að beita fólk ofbeldi, því geturu ekki komið og kvartað þegar einhver...

Re: Kostir Frjálshyggju

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Landvarnir og sérstaklega löggæsla eru hlutir sem þurfa að vera hlutlausir, þá á ég við að ef einkaaðili rekur lögregluna getur almenningur aldrei verið viss um að sá eða þeir sem reka hana séu hlutlausir gagnvart sjálfum sér eða öðrum hagsmunaaðilum. Réttarkerfið verður að vera hlutlaust því fólk verður að geta treyst því að þeirra réttur sé trygður. Skólar koma réttindum fólks ekkert við, menntun er forréttindi sem við viljum jú að flestir njóti. Traust fólks á skólum byggir ekki á...

Re: Kostir Frjálshyggju

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Þetta er bara svo léleg rök hjá þér að segja mönnum að fara annað, ég á ekki að þurfa að fara annað. Þú réttlætir ekki ofbeldi og þvinganir á þeim forsendum að menn geti farið annað. Ríkisborgara réttur er enganveginn samningur sem þú gengst undir því hvað felst í honum er breitilegt, ólíkt samningum. Ég get til dæmis ekki rift samningnum á þeim forsenum að mér finnist hann ekki hafa staðið undir mínum væntingum og síðan krafist bóta. Við búum við lýðræði sem er ágætis hlutur upp að vissu...

Re: Kostir Frjálshyggju

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Eins og ég sagði þá hef ég ekki séð þennan þátt og ætla mér ekki að sjá hann svo mér er nokk sama. Ég kýs það nú samt frekar að fá almenna gagnrýni frá fólki en skítkast sem skilar engu.

Re: Kostir Frjálshyggju

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Ef þú telur kristni vera fínan lífstíl þá telur hann bara upp og lifir þínu lífi eftir honum ekki ætlast til þess að allir í kringum þig taki hann upp því þér finnst hann góður. Ég er ekki kristinn þar sem ég trúi ekki á einhvern yfirnáttúrulegan kraft sem stjórnar öllu. Frjálshyggja er ekki eináttastefna þar sem innan hennar geta leinst allar skoðanir og stefnur. Flestar stefnur snúast um það sem þú mátt ekki gera það er öfugt við frjálshyggjuna þar snýst þetta um það sem þú mátt gera. Ég...

Re: Kostir Frjálshyggju

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Ríkisborgararéttur er ekki samningur heldur viðurkenning á að þú njótir verndar ákeðins ríkis á þínum grunnréttindum. Auk þess get ég ekki afsalað mér íslneskum ríkisborgarrétti nema ég haf ríkisborgararétt frá öðru landi. Slíkt er nánast ómögulegt að fá nema góð ástæða liggi á bakvið. Þó svo ég sé íslenskur ríkisborgari þá veitir það ríkinu engan rétt til að beita mig þvingunum eða ofbeldi.

Re: Kostir Frjálshyggju

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Þá vitum við það gott fólk nec vill stjórna fólki hann augljóslega þolir það ekki að fólk fái að taka ákvarðanir fyrir sjálft sig og stjórna eigin neysluvenjum. Allt tal um að þetta og hitt sé ekki gott fyrir okkur eða samfélagið er hluti af aðfreðum manna á borð við hann til að ráðskast með eigur fólks og stjórna sem mestu í lífi þess. Heróín er ekkert frábrugðið öðrum vörum sem við neytum, það hefur áhrif á likama okkar líkt og aðrar vörur, þó áhrifin geti verði meiri og jafnvel slæm fyrir...

Re: Kostir Frjálshyggju

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Þú snýrð út úr eigin svörum, þú byrjar að segja að það sé í lagi að rukka fólk um skatta þar sem það búi hérna og að það hafi möguleika á að flytja burtu. Slík rök eru heimskuleg þar sem þú getur þá leift allt ofbeldi á þeim forsendum að menn geti alltaf flúið það. Síðan ferðu að tala um leiguliða og hvort ekki megi rukka þá, þarna erut kominn í alveg óskilda hluti þar sem menn gangast undir samning þegar þeir leiga. Við gerum enga samninga við fæðingu og auk þess höfum við náttúrulegan rétt...

Re: Kostir Frjálshyggju

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Þú ert bara að snúa út úr gaur en það er þitt mál.

Re: Kostir Frjálshyggju

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Ég þekki ekki til þessa þátta og veit ekki hvort ég á að verða móðgaður eða ánagður með svar þitt. Bersónulega reyni ég ekki að predika yfir fólki ég vil miklu frekar sína fram á mínar skoðanir með rökum en predikun.

Re: Kostir Frjálshyggju

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Haukur frænka er ágætur það versta við mannin er allt bullið sem kemur frá honum. Hann var að pretika hluti sem hann gat svo ekki lifað eftir sjálfur. Það er rétt hjá þér að maður gengur inn í þennan pakka í MR og þarf að taka honum, ég var einfaldlega að benda mönnum á að margt af því sem menn eru neyddir til að gera í samfélaginu í dag er réttlæt með þvi´að það sé svo gott fyrir okkur.

Re: Kostir Frjálshyggju

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Löggjöf sem ver minn rétt til að vera frjáls að eiga eignir og að verja sjálfan mig er skaðlaus löggjöf þar sem hún kemur ekki á neinum þvingunum gegn öðrum einstaklingum, en hún er nauðsynleg. Þegar ég á að fara að græða á því að hjálpa öðrum þá er allt í lagi að benda mönnum á ávininginn en við getum ekki þvingað þá til að taka þátt. Við vitum báðir að háskólamenntun getur skilað sér margfalt til fólks og til samfélagsins svo afvheru neyðum við ekki sem flesti í slíkt nám? hvað eigum við...

Re: Kostir Frjálshyggju

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Hjá tryggingafélögum þurfa menn oft að sýna fram á eitthvað tjón en það er nú bara þannig að þar sem margir reyna að svindla á kerfinu þá gera þeir kröfurm um sönnunarbyrgði, en ekki það ósangjarna að flest skinsamlegt fólk er ekki í erfileikum með það. Trygging er bara sparnaður sem menn leggja til hliðar og menn þurfa að borga, því er allt eins hægt að setja einhverja prósentu af launum sínum í annars konar ávöxtun. Bandaríkin eru ekki gott land til að bera samna með menntun eða...

Re: Kostir Frjálshyggju

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Ég er enginn anarkisti sem vill sleppa öllu ríkinu, ég er frjálshyggjumaður sem vill lágmarksríki. Landvarnir og löggjæsla eru hlutir þar sem einkaaðirlar myndu hætta til að fara út fyrir þau mörk sem löggjöfin setur. Löggæsla og dómsvald snýst um hlutleysi og til að halda lágmarksríki við og réttlátu réttarkerfi verður fólk að treysta hlutleysi þess. Rekstur skóla byggir ekki á hlutleysi heldur gæðum skólanna, það er enginn þörf fyrir ríkið að sjá um slíkt.

Re: Kostir Frjálshyggju

í Stjórnmál fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Það sem þér finnst ókristið finnst öðrum sjálfsagt þannig er bara heimurinn. Ég er nú ekkert sérlega trúaður og ætla því ekki að fara út í einhverja kristilegarpælingar. Þú verður að átta þig á því að frjálshyggjan bannar þér ekkert að hjálpa öðrum eða að þú og aðrir sem vilja halda uppi kristilegum viðhorfum byndist samtökum og breiðið ykkar boðskap. Það sem ég er að reyna að segja þér er að það á ekki að neyða fólk til að borga fyrir aðra, hver og einn verður að finna það hjá sjálfum sér...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok