Gerard Houllier segist munu halda áfram að spila sóknarleik þrátt fyrir að árangurinn í síðustu leikjum hafi látið á sér standa. Liverpool er nú án sigurs í fjórum síðustu deildarleikjum en Houllier sannfærður um að það muni breytast til batnaðar. “Ég vil bara halda áfram að spila eins og við gerðum á laugardag. Leikur okkar er opnari en við skapa okkur það mörg færi að einhvern tíma mun það borga sig. Þetta var frábær leikur og við sýndum góðan fótbolta. Við eigum hrós skilið að spila eins...