Bara grandskoðaði pakkana og reyndi að finna eitthvað pínulítið, svart og ef til vill á hreyfingu (samt örugglega erfitt að hreyfa sig í lofttæmdum poka). Rakst svo á pödduna og pakkinn var tekinn úr umferð.
Nei, áttum bara að skoða þá utanfrá, opnuðum ekki pakkana. Þannig það gæti vel verið það voru einhverjar pöddur inní miðjum pakkanum sem við gátum ekki séð :/ Ég fann bara þessa einu pöddu…
Það er örugglega of seint… Minnir að það var hægt að skrá sig í og úr þeim til 16. apríl. Getur samt prufað að hafa samband við námsmatsstofnun eða e-ð… Eða látið foreldra þína hringja í skólann þinn/námsráðgjafann og fá þau til að redda þessu, bekkjarsystir mín gerði það (eftir 16. apríl).
http://www.namsmat.is/vefur/samr_prof/grunnskolar/2003/10.bekk/0310nfrformulublad.pdf Hér eru allavega formúlurnar sem við fáum í náttúrufræðiprófinu. Og hér: http://www.namsmat.is/vefur/samr_prof/grunnskolar/framk_10/formulublad_stfae.pdf eru stærðfræðiformúlurnar sem við fáum.
Ég held að við höfum þurft að skrifa tvær málsgreinar. Samt frekar villandi að hafa setningar í leiðbeiningunum, þegar við erum nýbúin að læra að setning þarf ekki endilega að enda á punkti. Ég skrifaði allavega tvær málsgreinar í hvert svar og stundum voru fleiri en ein setning í hverri málsgrein…
Hér líka, 40 mín. Hélt það væri bara einhver ákveðin setuskylda í samræmdum prófum sem væri þá sú sama allsstaðar, eins og er oft í könnunum eins og PISA og þess háttar.
Sennilega fyrir þá sem skrifa stórt, eru lesblindir eða finnst þægilegra að skrifa í aðrar hvora línu. Ég var samt búin að skrifa um 110 orð þegar ég var búin með eina línu á seinni blaðsíðunni…
Ég svaraði working out, er samt alls ekki viss um að það sé rétt. Hvers vegna ætti hann að vera hetja bara afþví hann stundar ræktina? En heyrði hitt bara ekki, þannig ég valdi þetta. Ritunin mín fjallaði líka um Romeo & Juliet :P
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..